Innskráning í Karellen
news

Hjallastefnuráðstefna 5. október og aðrir starfsdagar

10. 09. 2018

Hjallastefnuráðstefnan okkar verður 5. október sem er föstudagur og verður það starfsdagur sem við tökum að hausti. Svo tökum við 2 starfsdaga á milli jóla og nýárs og svo 17. apríl sem er miðvikudagur fyrir Skírdag.

Það eru fjórir starfsdagar í Garðabæ, en þá daga verðum við með leikskólann opinn og okkar góða dagskrá í gangi eins og alla aðra daga. Eftirfarandi dagar eru starfsdagar í Garðabæ: 17. september, 26. október, 27. nóvember (1/2 dagur), 11. Janúar (1/2 dagur) og 31. maí.

© 2016 - Karellen